Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 21. nóvember 2017 23:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óli Kristjáns: Castillion? Get ekkert talað um getgátur
Óli Kristjáns stýrði FH í kvöld.
Óli Kristjáns stýrði FH í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Kristjánsson var léttur, ljúfur og kátur þrátt fyrir 1-0 tap gegn Stjörnunni í Bose mótinu í kvöld.

Ólafur tók við FH af Heimi Guðjónssyni í síðasta mánuði og hann stýrði liðinu í fyrsta sinn í kvöld.

„Það er fínt að vera kominn í gang og eins og ég sagði fyrir leikinn að maður notar þessa leiki til að kíkja á hópinn, bæði á gamla fætur og eins þá ungu leikmenn sem eru hjá félaginu," sagði Ólafur.

„Ég sá að það er gott að það eru sex mánuðir í mót og það er greinilegt að hvorki við né Stjarnan erum búin að æfa rosalega mikið. Það var ekki mikið tempó og menn fóru varlega."

„Það er gott að ég hef ekki sé Pepsi-deildina í beinni í fjögur ár, sem þjálfari og ég þarf að sjá mitt lið."

Ásmundur Haraldsson var í gær ráðinn aðstoðarþjálfari FH. Óli kveðst ánægður með þá ráðningu.

„Ási er góður þjálfari og hann hefur marga þætti í sínum persónuleika sem tikka vel fyrir þann búningsklefa sem við erum með hjá FH. Hann tikkaði líka í mörg box fyrir það sem hann getur gert sem þjálfari og við að aðstoða mig við leikgreininu og hann er mjög faglegur og skipulagður. Hann tel ég vera rétta manninn."

Geoffrey Castillion, framherji Víkings R., hefur verið orðaður við FH, en aðspurður út í hann sagði Óli: „Castillion? Ég get ekkert talað um getgátur. Ef einhver er á leiðinni færð þú að vita það fyrstur."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner