Adam Johnson, miðjumaður Sunderland, segir að allir þeir sem koma að Newcastle hljóti að hata hann.
Johnson skoraði sigurmark Sunderland í grannaslagnum gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag, en gestirnir skoruðu eina mark leiksins á 90. mínútu.
Johnson virðist alltaf ganga best gegn Newcastle og gerði hann frábærlega í markinu í dag.

,,Þeir hljóta að hata mig hérna," grínaðist Johnson við Sky Sports þegar hann var spurður út í frábæra tölfræði sína gegn Newcastle.
,,Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja, en ég er í skýjunum. Það var líka frábært að halda hreinu."
,,Þetta er mjög þýðingamikið fyrir mig, þetta er minn uppáhalds leikvangur."
Athugasemdir