Nú er rétt tæpur klukkutími í stórleik Liverpool og Arsenal á Anfield.
Síðasti leikur liðanna á þessum velli endaði með 5-1 sigri Liverpool. Fimm stig skilja liðin að en Arsenal er í sjöunda sæti deildarinnar á meðan Liverpool er í því ellefta.
Arsene Wenger gerir eina breytingu á liðinu frá 4-1 sigurleiknum á Newcastle um síðustu helgi en Calum Chambers kemur inn fyrir Hector Bellerín.
Brendan Rodgers heldur tryggð við Brad Jones en gerir fjórar breytingar frá tapinu á Old Trafford. Inn í vörnina koma Mamadou Sakho og Kolo Toure. Lucas Leiva kemur inn fyrir Joe Allen og þá er Lazar Markovic í byrjunarliðinu.
Byrjunarlið Liverpool:Jones, Toure, Skrtel, Sakho, Lucas, Henderson, Markovic, Coutinho, Gerrard, Lallana, Sterling
Byrjunarlið Arsenal:Szczesny, Debuchy, Mertesacker, Chambers, Gibbs, Flamini, Oxlade-Chamberlain, Cazorla, Alexis, Giroud, Welbeck
Athugasemdir