Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 21. desember 2014 08:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gareth Bale: Real er besta lið í heimi
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale segir að Real Madrid sé besta lið heimsins eftir að liðið vann HM félagsliða í gærkvöldi.

Bale skoraði annað mark leiksins í seinni hálfleik eftir að Sergio Ramos kom liðinu í 1-0 í fyrri hálfleik.

Það kórónaði frábært ár hjá Madrid en liðið vann fjóra titla alls, spænska bikarinn, Meistaradeildina, Ofurbikar Evrópu og HM félagsliða.

,,Þetta var mjög stór keppni fyrir okkur og það var frábært að ná að vinna hana," sagði Bale.

,,Þetta er búið að vera frábært ár. Að vinna alla þessa titla, vonandi er þetta bara byrjunin."

Real eru á toppi La Liga en þeir eru stigi á undan Barcelona og eiga leik til góða.

,,Við verðum að halda einbeittingu okkar í hverjum leik og vonandi náum við markmiðum okkar," bætti Bale við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner