David Moyes horfði upp á sína menn missa unnin leik niður í jafntefli á lokasekúndunum þegar Real Sociedad og Levante skildu jöfn í La Liga í gær.
Skotinn var skiljanlega svekktur en vítaspyrnudómurinn var ansi umdeildur.
,,Það er rétt að við höfðum ekki nógu góða stjórn á leiknum, sérstaklega eftir að við komumst í 1-0. Ég er vonsvikinn með það. En mér fannst við samt gera nóg til að ná í okkar fyrsta útisigur."
,,Mér fannst Levante ekki verðskulda jafnteflið svo þetta er mjög svekkjandi. Þið sáuð það allir að þetta var ekki víti." sagði Moyes ómyrkur í máli.
Athugasemdir