Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. desember 2014 16:51
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Leikmaður Rayo með tveggja fóta tæklingu á þjálfarann sinn
Paco Jemez
Paco Jemez
Mynd: Getty Images
Paco Jemez, þjálfari Rayo Vallecano, fékk heldur betur að finna fyrir því frá sínum eigin leikmanni þegar liðið mætti Espanyol í gær.

Jemez var þá tæklaður harkalega af Quini, varnarmanni sínum, en ólíklegt verður að teljast að tæklingin hafi verið af ásetningi. Quini lagði sig allan fram við að halda boltanum inná og endaði í kjölfarið á þjálfara sínum sem stóð á hliðarlínunni.

Þjálfarinn virtist þó frekar pirraður yfir atvikinu og ekki voru úrslit leiksins til þess fallin að létta lundina en Rayo tapaði leiknum 3-1.

Myndband af tæklingunni má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner