Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. desember 2014 10:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sebastian Larsson: Megum ekki láta tilfinningarnar taka yfir
Sebastian Larsson.
Sebastian Larsson.
Mynd: Getty Images
Sebastian Larsson, miðjumaður Sunderland segir að leikmenn mega ekki láta tilfinningarnar taka yfir er liðið mætir Newcastle í grannaslag í dag.

Sunderland geta með sigri unnið sinn fjórða leik í röð gegn Newcastle. Larsson viðurkennir að honum langi virkilega að vinna Newcastle á ný.

,,Maður er smá stressaður fyrir svona leiki því það er mikið undir, en ég hef verið heppinn og upplifað sigur í þessum leikjum og það er frábær tilfinning," sagði Larsson.

,,Þú vilt finna þessa tilfinningu aftur og við munum gera allt til að sigra leikinn. Þetta eru leikirnir sem þú vilt vinna en við verðum að halda ró okkar og ekki láta tilfinningarnar taka yfir."
Athugasemdir
banner
banner
banner