Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 21. desember 2016 15:00
Elvar Geir Magnússon
Óli Palli: Erum með nöfn á lista sem við herjum á
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þetta eru frábærar fréttir fyrir FH og við förum glaðir inn í jólin," segir Ólafur Páll Snorrason, aðstoðarþjálfari FH, um nýjasta leikmann Hafnarfjarðarliðsins en Halldór Orri Björnsson var í dag kynntur sem nýjasti leikmaður Íslandsmeistarana.

„Hann kemur með ákveðinn þunga í sóknarleikinn, þar sem umtalað var síðasta sumar að ekki hefði gengið nægilega vel hjá FH-liðinu. Þar erum við að safna liði. Hann kemur með frábæra eiginleika í sóknina"

„Þetta mál var klárað mjög fljótt enda er þetta leikmaður sem við höfðum gríðarlega mikinn áhuga á að fá í okkar raðir þegar þetta kom upp. Það var gengið hratt til verks og við erum gríðarlega ánægðir."

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði í viðtali á dögunum að styrkja þyrfti allar línur liðsins.

„Við erum ekki hættir eins og staðan er í dag. Við áætlum að fá fleiri leikmenn en hvenær það verður er erfitt að segja. Við stefnum að því að styrkja liðið enn frekar," segir Ólafur Páll.

„Við erum með ákveðinn lista sem við erum að reyna að vinna úr. Það eru nöfn á honum sem við erum að herja á þessa dagana. Vonandi gerist það sem fyrst. Það er sterkt að ná að loka hópnum sem fyrst. Sjáum hvað gerist á næstu vikum."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner