Bjarni Guðjónsson stýrði KR til sigurs gegn Fram, liðinu sem hann stýrði í fyrra. KR vann 2-0 og er í góðri stöðu til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins. Margir ungir leikmenn tóku þátt í leiknum í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 2 - 0 Fram
„Á heildina litið er ég sáttur en mér fannst við detta óþarflega mikið niður síðustu 20 mínúturnar í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik gekk þetta fínt. Framarar voru bara með það að markmiði að liggja til baka sýndist mér á öllu," sagði Bjarni eftir leik.
„Það er fullt af ungum og efnilegum strákum í KR. Þeir eru núna að fá tækifæri og eru flestir að taka það vel. Þeir hafa staðið sig vel og verið duglegir, það skiptir miklu máli. Þetta er fínn tími fyrir unga stráka að fá sitt tækifæri og sýna sig."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir