Fotbolti.net
22.01.16 - 10:32
Magnús Már Einarsson

Daði Freyr í FH (Staðfest)

Daði Freyr í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

FH hefur fengið markvörðinn Daða Frey Arnarsson í sínar raðir frá BÍ/Bolungarvík.

Daði er fæddur árið 1998 og er því ennþá gjaldgengur í 2. flokki.

Síðastliðið sumar spilaði Daði níu leiki í 1. deild með BÍ/Bolungarvík.

Hann á einnig níu leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands.
Síðastliðið haust fór Daði til enska félagsins Norwich á reynslu.

Hræringar hafa verið í markmannsmálum FH í vetur en þeir Róbert Örn Óskarsson og Kristján Finnbogason eru farnir á meðan Gunnar Nielsen kom frá Stjörnunni. Fyrir hjá FH er einnig markvörðurinn ungir Kristján Pétur Þórarinsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.