sun 22. janúar 2017 19:01
Kristófer Kristjánsson
Cahill: Frábært að fá Costa til baka
Gary Cahill skorar hér markið sitt
Gary Cahill skorar hér markið sitt
Mynd: Getty Images
Chelsea stækkaði forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í átta stig með 2-0 sigri á Hull City í dag.

Diego Costa og Gary Cahill skoruðu mörk heimamanna og var sá síðarnefndi sigurreifur eftir góð úrslit í mikilvægum leik.

„Þetta var góð helgi fyrir okkur áður en við spiluðum og við vissum hversu mikilvægur þessi leikur var," sagði Cahill við blaðamenn Sky Sports eftir leikinn.

„Það getur allt gerst í úrvalsdeildinni og í stöðunni 1-0 reyndur þeir allt til að jafna."

Cahill var hæstánægður með að sjá samherja sinn Diego Costa vera kominn aftur í liðið.

„Það er frábært að fá hann aftur og hann er hæstánægður með að vera kominn aftur," sagði Cahill sem telur að Chelsea sé nú í bílstjórasætinu í titilbaráttunni.

„Við erum komnir með góða forystu og við erum staðráðnir í að halda henni."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner