sun 22. janúar 2017 18:00
Kristófer Kristjánsson
Henry: Hefði viljað spila með Özil
Mesut Özil
Mesut Özil
Mynd: Getty Images
Arsenal goðsögnin, Thierry Henry, segir að hann hefði viljað spila með Mezut Özil hjá Arsenal.

Henry, sem lagði skónna á hilluna árið 2014, skoraði 228 mörk fyrir Arsenal og spilaði með mörgum af bestu leikmönnum í sögu félagsins segir að hann hefði haft yndi af því að spila við hlið Özil.

„Ég hefði elskað að spila fyrir framan Özil. Hann er leikmaður sem getur aðlagast hvaða framherja sem er og nýtt styrkleika þeirra," sagði Henry í vikulegum pistili sínum á The Sun.

„Ég held að fólk skilji ekki hversu góður hann er, fólk heldur að hann sé latur en það er fjarri sannleikanum, hann er frábær leikmaður."

Henry vonast, sem stuðningsmaður Arsenal, að Özil skuldbindi sig félaginu og skrifi undir framlengdan samning.

„Özil vill vita hvort Wenger verði áfram áður en hann skrifar. Ég er Arsenal stuðningsmaður og ég vona ólmur að hann verði áfram."
Athugasemdir
banner
banner