Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 22. janúar 2017 13:28
Kristófer Kristjánsson
Ítalía: Juventus vann toppslaginn gegn Lazio
Higuain og Dybala skoruðu í dag
Higuain og Dybala skoruðu í dag
Mynd: Getty Images
Juventus 2 - 0 Lazio
1-0 Paulo Dybala ('5 )
2-0 Gonzalo Higuain ('17 )

Ítölsku meistararnir í Juventus unnu þægilegan sigur á Lazio í hádegisleik ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Paulo Dybala og Gonzalo Higuain skoruðu báðir á fyrstu 17 mínútum leiksins og stjórnuðu leiknum eftir það.

Juventus, með þessum sigri, styrkir stöðu sína á toppi deildarinnar með 48 stig, fjórum stigum fyrir ofan Roma.

Lazio eru áfram í fjórða sæti, átta stigum frá Juventus.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner