Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. janúar 2017 21:45
Kristófer Kristjánsson
Ítalía: Sigurmark Edin Dzeko setur pressu á Juventus
Edin Dzeko skoraði mikilvægt mark
Edin Dzeko skoraði mikilvægt mark
Mynd: Getty Images
Síðustu tveimur leikjum ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag er nú lokið.

Edin Dzeko tryggði Roma sigur á heimavelli gegn Cagliari í afar bragðdaufum leik.

Heimamenn geta þó verið ánægðir með stigin þrjú en Roma er í öðru sæti, stigi á eftir toppliði Juventus sem á leik til góða.

Atalanta vann 1-0 sigur á Sampdoria þökk sé vítaspyrnu Alejandro Gomez. Lítið gengur hjá Sampdoria sem hefur ekki unnið í síðustu sex deildarleikjum sínum.

Roma 1 - 0 Cagliari
1-0 Edin Dzeko ('55 )

Atalanta 1 - 0 Sampdoria
1-0 Alejandro Gomez ('55 , víti)

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner