Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. janúar 2017 23:00
Kristófer Kristjánsson
Pogba: Mér líður alltaf vel með Griezmann
Pogba & Griezmann eru sem bræður
Pogba & Griezmann eru sem bræður
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann, leikmaður Atletico Madrid, er reglulega orðaður við félagsskipti til Manchester United um þessar mundir og munu þeir orðrómar eflaust styrkast eftir nýleg ummæli Paul Pogba, samherja hans hjá franska landsliðinu og miðjumanns Manchester United.

Paul Pogba og Antoine Griezmann eru þekktir fyrir vinskap sinn og segir sá fyrrnefndi að samband þeirra utan vallar hjálpi þeim að spila betur saman.

„Ég á alltaf góða tíma með Griezmann," sagði Pogba við Telefoot.

„Hann er mér sem bróðir, við erum alltaf saman. Þegar þér líður vel með samherjum þínum utan vallar þá gengur betur inn á vellinum og það er það sem gerist hjá franska landsliðinu."

Fjölmiðlar í Englandi segja að forráðamenn Manchester United og Atletico Madrid hafi rætt möguleg félagsskipti en Jose Mourinho er sagður tilbúinn að borga út klásúlu Frakkans sem er 100 milljón evrur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner