sun 22. janúar 2017 11:29
Kristófer Kristjánsson
Rakitic: Ég vil endurnýja hjá Barcelona
Ivan Rakitic vill vera áfram hjá Barcelona
Ivan Rakitic vill vera áfram hjá Barcelona
Mynd: Getty Images
Króatíski miðjumaðurinn Ivan Rakitic hefur verið orðaður við Manchester City undanfarið í fjölmiðlum en hann sjálfur ætlar sér að vera áfram í Barcelona.

Rakitic, sem verður samningslaus 2019, var ekki valinn í leikmannahóp Luis Enrique tvisvar í röð í desember og leiddi það til þess að orðrómarnir um félagsskipti urðu háværari.

Króatinn knái hefur hinsvegar byrjað að spila reglulega aftur og var hann fljótur að skuldbinda sig félaginu í viðtali við blaðamenn eftir 1-0 sigur Barcelona á Real Sociedad í spænska bikarnum í vikunni.

„Ég vona að ég verði hérna í mörg ár," sagði Rakitic.

„Ég vil endurnýja samning minn hérna. Það er áhyggjuefni að spila lítið því ég vil alltaf spila en ég treysti þjálfarnum algjörlega og held áfram að leggja hart að mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner