Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 22. janúar 2017 10:58
Kristófer Kristjánsson
Ramos: Þurfa ekki að sparka í okkur þegar við liggjum
Mynd: Getty Images
Real Madrid komst aftur á sigurbraut í gær þegar liðið lagði Malaga á heimavelli, 2-1, en liðið hafði tapað undanförnum leikjum.

Þrátt fyrir sigurinn var mikið púað á Bernabeu vellinum og hefur nú Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, biðlað til stuðningsmanna um að sýna meiri hvatningu.

„Við getum aldrei breytt Bernabeu," sagði hinn þrítugi Ramos sem hefur verið hjá félaginu síðan 2005.

„Ég hef verið hér í mörg ár og allir stóru leikmennirnir hafa lent í því að það sé púað á þá en á erfiðu stundunum þurfum við stuðningsmennina á bak við okkur, ekki að sparka í okkur á meðan við liggjum."
Athugasemdir
banner
banner
banner