Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. janúar 2017 22:11
Kristófer Kristjánsson
Reykjavíkurmótið: Fram lagði ÍR
Alex Freyr Elísson skoraði fyrir Fram í kvöld
Alex Freyr Elísson skoraði fyrir Fram í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 2 - 1 ÍR
1-0 Kristófer Jacobson Reyes ('59)
2-0 Alex Freyr Elísson ('70)
2-1 Markaskorara vantar ('90)

Seinni leik kvöldsins í Reykjavíkurmóti karla lauk nú rétt í þessu en þar áttust við Fram og ÍR í Egilshöllinni.

Framarar höfðu betur og unnu 2-1 sigur en markalaust var í hálfleik.

Kristófer Jacobson Reyes kom Fram yfir eftir um klukkutíma leik þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Alex Frey Elíssyni.

Alex Freyr Elísson tvöfaldaði svo forystu Safamýrapilta tíu mínútum síðar.

ÍR klóraði í bakkann með marki í uppbótartíma en það dugði ekki til.

Framarar hafa þá unnið báða leiki sína á Reykjavíkurmótinu en ÍRingar hafa gert eitt jafntefli og tapað tveimur.
Athugasemdir
banner
banner