Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. janúar 2017 15:00
Kristófer Kristjánsson
Skrópaði á æfingu vegna þess að innkeyrsluhliðið var bilað
Ross McCormack er ekki í náðinni hjá Steve Bruce
Ross McCormack er ekki í náðinni hjá Steve Bruce
Mynd: Getty Images
Ross McCormack, framherji Aston Villa, er heldur latur að mæta á æfingar ef marka má stjóra hans, Steve Bruce.

Samkvæmt Bruce var síðasta afsökun McCormack sú að hann komst ekki út úr innkeyrslunni og hefur þessi margreyndi þjálfari nú talað opinskátt við fjölmiðla um agaleysið í von um að framherjinn fari að hugsa sinn gang.

Bruce segir að McCormack verði ekki valinn í liðið aftur fyrr en að viðhorf hans breytist en Skotinn geðþekki hefur verið iðinn við að skrópa á æfingar.

„Ef hann bætir ekki viðhorf sitt þá er hann ekki hæfur til að spila," sagði Steve Bruce við The Mirror.

„Síðasta afsökunin hans var að hliðið fyrir innkeyrslunni var bilað og hann gat greinilega ekki hoppað yfir hlið sem er 140 cm hátt."

„Það er alltof mikið agaleysi hjá félaginu. Ég hef aldrei, eftir 20 ár í starfi, þurft að vera svona strangur en ég hef ekki annað val núna ef ég ætla að breyta þessu. Ég líð ekki svona á minni vakt."
Athugasemdir
banner
banner
banner