Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real Madrid, var ekki sáttur við stuðningsmenn félagsins er liðið vann Malaga í gær.
Ástæða þess er að stuðningsmennirnir flautuðu og púuðu á Cristiano Ronaldo í leiknum, þar sem þeim fannst hann ekki standa sig nægilega vel.
Real vann leikinn 2-0 en Ronaldo skoraði ekki og brenndi hann af nokkrum færum í leiknum.
„Stundum þegar það gengur illa, þarftu hjálp stuðningsmanna. Ég ætla ekki að gagnrýna stuðningsmennina því þeir borga peninga til að sjá liðið en stundum þarftu á stuðningi að halda."
„Ég þarf að biðja stuðningsmennina okkar um að hafa meiri þolinmæði og hjálpa okkur frekar en að flauta púa," sagði Zidane.
Athugasemdir