Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. janúar 2018 17:00
Elvar Geir Magnússon
Evans getur farið fyrir þrjár milljónir punda ef West Brom fellur
Manchester City gæti gert tilboð í Evans áður en mánuðurinn er á enda.
Manchester City gæti gert tilboð í Evans áður en mánuðurinn er á enda.
Mynd: Getty Images
Hætta er á að West Brom missi fyrirliðann Jonny Evans fyrir þrjár milljónir punda í sumar ef liðið fellur úr ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal og Manchester City hafa sýnt þessum þrítuga miðverði áhuga en hann er metinn á 23 milljónir punda af West Brom.

Hann á enn átján mánuði eftir af núgildandi samningi og hefur sagt West Brom að hann hyggist ekki skrifa undir nýjan.

BBC segir að klásúla sé í samningi Evans um að hann geti yfirgefið West Brom fyrir þrjár milljónir punda ef liðið fellur úr efstu deild.

West Brom er sem stendur í fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti, og hefur aðeins unnið einn af síðustu 22 úrvalsdeildarleikjum.

Stjórn West Brom er sögð hafa rætt það á fundum hvort best væri að selja Evans núna í glugganum til að fjármagna kaup á sóknarmanni, en liðið þarf nauðsynlega að styrkja sig sóknarlega.

Aðeins Swansea og Brighton hafa skorað færri mörk en 19 mörk West Brom. Jay Rodriguez er markahæsti leikmaður liðsins með fjögur mörk.

Leicester og Everton hafa einnig áhuga á Evans sem er fyrrum leikmaður Manchester United.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner