Inter er búið að krækja í brasilíska miðjumanninn Rafinha á láni frá Barcelona.
Rafinha verður 25 ára í febrúar og hefur gert eitt mark í tveimur landsleikjum fyrir Brasilíu.
Rafinha verður 25 ára í febrúar og hefur gert eitt mark í tveimur landsleikjum fyrir Brasilíu.
Rafinha hefur gert 11 mörk í 79 leikjum fyrir Barcelona en fær ekkert pláss á miðjunni, enda í samkeppni um byrjunarliðssæti við menn á borð við Ivan Rakitic og Sergio Busquets.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið og getur Inter keypt miðjumanninn á 38 milljónir evra.
„FC Internazionale Milano og FC Barcelona hafa komist að samkomulagi um að Rafinha verði lánaður yfir til 30. júní 2018," stendur í yfirlýsingu frá Inter.
Athugasemdir