Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 22. janúar 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo allur út í blóði - Notaði síma til að sjá sig
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, missti af lokamínútunum í 7-1 sigri liðsins á Deportivo La Coruna í gærkvöldi.

Ronaldo skoraði fimmta og sjötta mark Real í leiknum. Síðara mark hans kom með skalla en þegar Ronaldo skoraði sparkaði Fabian Schar varnarmaður Deportivo óvart í höfuð hans.

Ronaldo varð blóðugur fyrir vikið og þurfti að yfirgefa völlinn.

Ronaldo fékk lánaðan síma hjá lækni Real Marid til að geta séð sjálfur mynd af meiðslunum. Portúgalinn var síðan allt annað en sáttur þegar hann sá allt blóðið.

Hér að neðan má sjá Ronaldo virða meiðslin fyrir sér.


Athugasemdir
banner
banner