Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 22. janúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn létu Goretzka heyra það
Leon Goretzka.
Leon Goretzka.
Mynd: Getty Images
Leon Goretzka, miðjumaður Schalke, fékk ekki góðar móttökur frá stuðningsmönnum liðsins í 1-1 jafntefli gegn Hannover í dag.

Goretzka hefur ákveðið að ganga í raðir Bayern Munchen í sumar þegar samningur hans við Schalke rennur út en þetta var tilkynnt í síðustu viku.

Stuðningsmenn Schalke bauluðu á Goretzka í leiknum í gær og voru með borða á lofti þar sem hann fékk að heyra það.

„Hvorki peningar eða titlar eru merkilegri en þitt félag. Ef þú áttar þig ekki á því þá máttu fara núna," stóð á einum borðanum.

Hinn 22 ára gamli Goretzka hafði einnig verið orðaður við Liverpool en hann ákvað að semja við Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner