Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 22. janúar 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Sturridge þarf að velja - Inter eða Liverpool
Sturridge hefur spilað 15 leiki á tímabilinu.
Sturridge hefur spilað 15 leiki á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge, framherji Liverpool, þarf að velja á milli þess að vera áfram hjá félaginu eða ganga í raðir Inter. Sky greinir frá þessu í dag.

Sturridge hefur líka verið orðaður við Sevilla en spænska félagið hefur ekki lagt fram tilboð í hann.

Inter vill fá Sturridge á láni og Liverpool er tilbúið að samþykkja það.

Hinn 28 ára gamli Sturridge þarf því að ákveða hvort hann vilji fara á lán út tímablið eða ekki.

Liverpool er líka tilbúið að halda Sturridge innan sinna raða og líklegar er að það verði niðurstaðan eins og staðan er í dag. Forráðamenn Inter ætla þó að ræða við Sturridge og reyna að sannfæra hann um að koma til Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner