Gunnar Guðmundsson tók síðasta haust við sem þjálfari Gróttu sem komst upp úr 2. deildinni á síðasta tímabili. Grótta mætti Leikni, nýliðum Pepsi-deildarinnar, í Lengjubikarnum í dag og tapaði 2-4.
„Það var nóg af mörkum og nóg af færum líka sem ekki nýttust. Þetta var fjörugur leikur. Við áttum í vandræðum fyrstu tíu mínúturnar en svo náðum við að stilla okkur af og komum okkur inn í leikinn. Það skiptir náttúrulega máli að við náðum að setja mark á þá og eftir það komumst við vel inn í þetta," sagði Gunnar eftir leikinn. „Þegar þeir komust í 3-2 þá misstum við hinsvegar aðeins dampinn."
„Við erum að taka skref fyrir skref að byggja okkur upp og bæta okkur. Við erum að stilla okkur inn á komandi tímabil en það er ljóst að við þurfum að bæta í. Við erum að vinna í þeim málum. Við þurfum að styrkja okkur meira fyrir komandi tímabil."
Það hafa verið nokkrar stórar fréttir úr 1. deildinni að undanförnu og liðin dugleg að styrkja sig. Það má því búast við ansi harðri baráttu.
„Það eru nokkur lið sem eru greinilega með það á stefnuskránni að fara upp og eru að leggja mikið undir. Ég sé fram á að deildin verði sterk eins og undanfarin ár. Við þurfum að bæta í hjá okkur til að geta haldið okkur í þessari deild."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir