Stefán Þór Pálsson skoraði tvö mörk fyrir Víking Reykjavík þegar liðið vann 3-1 sannfærandi sigur gegn Selfossi í Lengjubikarnum í dag. Þessi ungi sóknarmaður gekk í raðir Víkings frá Breiðablik í vetur en hann hefur leikið á láni hjá Grindavík og KA.
„Þetta var mjög fínt og liðið spilaði vel í heildina. Við lögðum upp með að pressa þá frá fyrstu mínútu og það skilaði tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Ég er ánægður með leik liðsins," sagði Stefán.
„Við vorum með leikinn allan tímann en Selfoss náði marki á okkur sem er ekki gott. Við vildum halda hreinu."
Thomas Nielsen spilaði í marki Víkings en þessi danski markvörður gekk í raðir félagsins í vetur. Það reyndi ekki mikið á hann í dag en hann hefði getað gert betur í marki Selfoss.
„Hann er mjög flottur og frábær markvörður. Hann var óheppinn í markinu sem hann fékk á sig en það þýðir ekkert að svekkja sig á því, segir Stefán sem er ánægður með lífið í Víkinni.
„Mér líður mjög vel hérna, fín aðstaða, frábærir þjálfarar og frábært lið. Þetta verður bara skemmtilegt sumar. Það er mikil samkeppni en þannig á það að vera. Bestu æfingarnar eru með bestu leikmönnunum."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir