Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. febrúar 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Aron Dagur í Völsung á láni (Staðfest)
Aron Dagur í bikarleik gegn ÍR í fyrra.
Aron Dagur í bikarleik gegn ÍR í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur hefur fengið markvörðinn Aron Dag Birnuson á láni frá KA fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.

Aron hefur undanfarin ár verið varamarkvörður KA en í fyrra spilaði hann einn leik með liðinu í Pepsi-deildinni og einn leik í Borgunarbikarnum.

Aron Dagur er fæddur 1999 og er því ennþá á elsta ári í 2. flokki.

Þá hefur Aron leikið þrjá leiki með U19 ára landsliði Íslands og tólf leiki með U17 ára landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner