banner
   fim 22. febrúar 2018 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
De Gea um vörsluna: Kom á mikilvægum tímaunkti
Mynd: Getty Images
Leikmenn Sevilla fundu ekki leiðina fram hjá David de Gea, markverði Manchester United, í gærkvöldi.

Sevilla og Manchester United áttust við í Meistaradeildinni og virtist Jose Mourinho, stjóri United, leggja upp með að fá jafntefli úr leiknum, sem honum tókst að gera.

Sevilla komst nálægt því að skora í leiknum, þó aldrei nær því en undir lok fyrri hálfleiks þegar David de Gea varði ótrúlega eftir skalla frá sóknarmanninum Luis Muriel.

„Þetta var á síðustu mínútu fyrri hálfleiks þannig að þetta var á mikilvægum tímapunkti," sagði hógvær De Gea eftir leikinn.

„Ég náði vörslunni. Ég er ánægður með það."

„Þeir áttu bestu færi leiksins. Við vörðumst vel, en þeir stjórnuðu ferðinni og spiluðu mjög vel. Þetta er opið fyrir seinni leikinn."

Sjá einnig:
De Gea hlaðinn lofi fyrir magnaða vörslu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner