Queen of the South í skosku B-deildinni er í markmannsvandræðum þessa dagana en Alan Martin markvörður liðsins er meiddur.
Sam Henderson, þriðji markvörður Queen of the South, er einnig meiddur eftir ótrúlegt atvik í vikunni.
Hinn 19 ára gamli Henderson var að hjálpa föður sínum á sveitabæ hans þegar að kýr kom á fleygiferð hlaupandi á hann.
Henderson slasaðist og hefur ekki getað æft í vikunni eftir óhappið á sveitabænum.

„Þetta hefði getað verið verra því kýrin reyndi að hlaupa á hann í annað skipti en þá náði hann að koma sér í burtu," sagði Dougie Anderson aðstoðarstjóri Queen of the South.
Athugasemdir