Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 22. febrúar 2018 22:33
Ívan Guðjón Baldursson
Lögreglumaður lést eftir átök við stuðningsmenn
Mynd: Getty Images
Spænskur lögreglumaður lést eftir viðureign Athletic Bilbao og Spartak frá Moskvu í Evrópudeildinni.

Spartak hafði betur í leiknum en komst ekki áfram eftir 3-1 sigur Bilbao í fyrri leiknum í Rússlandi.

Stuðningsmenn Spartak sem komu til Bilbao alla leið frá Moskvu voru með læti fyrir og eftir leikinn.

Þeir kljáðust við lögreglumenn og lést einn lögreglumannanna úr hjartastoppi í átökunum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndbönd af átökunum, þar sem menn voru mikið að berjast með flugeldum.





















Athugasemdir
banner
banner