Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 22. febrúar 2018 14:30
Magnús Már Einarsson
Rooney hafnaði risatilboðum fyrir Everton - Vildi pressuna
Rooney gerði tveggja ára samning við Everton.
Rooney gerði tveggja ára samning við Everton.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney segist hafa hafnað risatilboðum frá Kína og víðar áður en hann fór frá Manchester United aftur í uppeldisfélag sitt Everton síðastliðið sumar.

Hinn 32 ára gamli Rooney átti kost á að fara í félög utan Englands og þéna háar fjárhæðir.

„Það er ekki ég. Ég þarf að hafa markmið og ég þarf að hafa pressu á mér. Ástríðan fyrir því að spila hefði farið ef ég hefði valið einhvern annan kost," sagði hinn 32 ára gamli Rooney við Football Focus á BBC.

„ Ég vissi að það var meiri pressa í því að fara aftur til Everton og það var það sem ég vildi. Ég vildi sanna mig aftur fyrir stuðningsmönnum Everton, reyna að hjálpa félaginu fram á við og vinna titla."

„Ég tel að þetta hafi verið fullkomið val fyrir mig og vonandi getum við gert þetta á næstu tveimur eða þremur árum."

Athugasemdir
banner
banner