Ruben Semedo, varnarmaður Villarreal, hefur verið kærður fyrir tilraun til manndráps.
Semedo er 23 ára portúgalskur varnarmaður og á 14 leiki að baki fyrir yngri landslið Portúgal.
Semedo er 23 ára portúgalskur varnarmaður og á 14 leiki að baki fyrir yngri landslið Portúgal.
Semedo hefur áður komist í kast við lögin en var þrátt fyrir sögu sína keyptur til Villarreal á 14 milljónir evra síðasta sumar.
Semedo situr fastur í gæsluvarðhaldi og hefur saksóknari ákveðið að kæra hann fyrir líkamsárás, hótanir, frelsissviptingu, vopnað rán og eigu ólöglegs skotvopns auk tilraunar til manndráps.
Umboðsmaður Semedo segir leikmanninn neita fyrir þetta allt og hefur Villarreal hafið eigin rannsókn á málinu.
Athugasemdir