Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 22. mars 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: Fram lagði ÍR
Helgi Guðjónsson.
Helgi Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 1 - 2 Fram
0-1 Helgi Guðjónsson
1-1 James Mack
1-2 Helgi Guðjónsson

Fram lagði ÍR 2-1 í æfingaleik sem fór fram á gervigrasvelli ÍR í gærkvöldi.

Framarar komust yfir í upphafi fyrri hálfleiks með marki frá Helga Guðjónssyni en James Mack jafnaði skömmu síðar. Mack er kantmaður sem hefur spilað með Selfyssingum undanfarin ár en hann hefur æft með ÍR að undanförnu.

Helgi bætti svo við öðru marki fyrir Fram skömmu áður en flautað var til hálfleiks og fleiri urðu mörkin ekki.

Bæði þessi lið eru að undirbúa sig fyrir Inkasso-deildina sem hefst 5. maí. Fram fær Selfoss í heimsókn í fyrstu umferð á meðan ÍR fær Víking Ólafsvík í heimsókn.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner