Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 22. apríl 2014 17:05
Elvar Geir Magnússon
Atletico Madrid - Chelsea í opinni dagskrá
Mynd: Getty Images
Fyrri undanúrslitaleikur Atletico Madrid og Chelsea í Meistaradeild Evrópu er sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld en leikurinn er í opinni dagskrá.

Leikurinn hefst 18:45 og sér Guðmundur Benediktsson um lýsinguna.

Samuel Eto'o er meiddur á hné og verður ekki með Chelsea en Belginn Eden Hazard hefur getað æft í aðdraganda leiksins.

Petr Cech missti af síðasta leik Chelsea vegna veikinda en hann verður væntanlega í markinu í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner