Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 22. apríl 2014 16:45
Elvar Geir Magnússon
Gummi Ben: Er betri þjálfari en ég var þá
Guðmundur með töflufund.
Guðmundur með töflufund.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er ákaflega ánægður og stoltur," segir Guðmundur Benediktsson sem mun taka við þjálfun Breiðabliks í byrjun júní af Ólafi Kristjánssyni sem ráðinn hefur verið þjálfari Nordsjælland í Danmörku.

„Mér hefur liðið ákaflega vel í Kópavoginum með Óla og það hefur verið gaman að vinna með honum og verður það áfram. Ég er gríðarlega ánægður með að hann verði með okkur þessa fyrstu leiki í deildinni. Það mun bara hjálpa mér og liðinu. Um það er ég sannfærður."

Guðmundur var þjálfari Selfoss 2010 í Pepsi-deildinni en liðið féll. Hann var svo ráðinn til Breiðabliks þa sem hann hefur verið aðstoðarmaður Ólafs. Guðmundur segist hafa breyst sem þjálfari frá því að hann steig sín fyrstu þjálfaraskref á Selfoss.

„Ég held að það sé alveg klárt mál. Ég hafði ákaflega gaman að því þegar ég þjálfaði Selfoss og ég lærði mikið af því. Maður lærir ekki nema maður geri hlutina. Ég held að ég geti fullyrt það að ég er betri þjálfari í dag en ég var þá."

Guðmundur er einn ástsælasti íþróttalýsandi landsins og ljóst að þetta hefur áhrif á starf hans fyrir Stöð 2 Sport.

„Þetta hefur einhver áhrif en þetta er nýkomið upp og það er ekki komin nein niðurstaða í þau mál. Við höfum einmitt eytt deginum í að skoða þau mál og við finnum einhverja lausn á því. Ef það er áhugi þá finnst lausn."

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner