Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. apríl 2014 08:34
Elvar Geir Magnússon
Gummi Ben tekur við Breiðabliki (Staðfest)
Ólafur Kristjánsson stýrir liðinu til 2. júní
Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur Benediktsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hér að neðan má sjá fréttatilkynningu frá Breiðabliki en ákveðið hefur verið að Guðmundur Benediktsson taki við þjálfun liðsins af Ólafi Kristjánssyni.



Guðmundur Benediktsson mun taka við þjálfun karlaliðs Breiðabliks í Pepsi-deildinni í byrjun júní en frá og með 1. júlí mun Ólafur Kristjánsson taka við þjálfun FC Nordsjælland í dönsku A-deildinni. Guðmundur hefur verið aðstoðarþjálfari Ólafs frá 2011. Knattspyrnudeild Breiðabliks þakkar Ólafi fyrir frábært samstarf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Ólafur mun stýra Breiðabliksliðinu til 2. júní. Fram að því mætir Breiðablik liðum FH, KR, Keflavíkur, Fjölnis, Fram og Stjörnunnar í Pepsi-deildinni. Á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta, mætir Breiðablik FH í úrslitaleik Lengjubikarsins.

Guðmundur Benediktsson hóf þjálfun á Selfossi eftir farsælan knattspyrnuferil með nokkrum félögum á Íslandi og í útlöndum og með íslenska landsliðinu. Hann varð aðstoðarþjálfari hjá Breiðabliki 2011. Willum Þór Þórsson verður Guðmundi til aðstoðar. Willum er fyrrum leikmaður Breiðabliks og vann til tvennra Íslandsmeistaratitla sem þjálfari KR og bikar- og Íslandsmeistaratitils með Val.

Ólafur tók við Breiðabliksliðinu um mitt sumar 2006. Undir hans stjórn hefur liðið unnið sína stærstu sigra; bikarameistaratitilinn árið 2009 og Íslandsmeistaratitilinn 2010. Liðið hefur verið á meðal nokkurra bestu liða landsins alla tíð síðan og er ríkjandi Lengjubikarmeistari.

Knattspyrnudeild Breiðabliks horfir á eftir Ólafi með söknuði um leið og deildin fagnar með honum þessu frábæra tækifæri sem honum býðst. Hann hefur leitt karlaliðið til stærstu sigra þess og undir hans stjórn hafa sprottið úr grasi framúrskarandi knattspyrnumenn sem standa sig frábærlega með Breiðabliksliðinu en ekki síður haslað sér völl í útlöndum. Knattspyrnudeild Breiðabliks er stolt af því.
Athugasemdir
banner
banner
banner