þri 22. apríl 2014 20:43
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Steindautt jafntefli hjá Atletico og Chelsea
Raul Garcia og Ashley Cole eigast við í leiknum
Raul Garcia og Ashley Cole eigast við í leiknum
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 0 - 0 Chelsea

Það voru eflaust margir áhorfendur sem steinsofnuðu yfir leik Atletico Madrid og Chelsea í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Heimamenn voru töluvert sterkari aðilinn og var liðið mikið með boltann en lið Chelsea varðist vel og hélt línu.

Bestu tvö færi fyrri hálfleiks fengu þeir Mario Suarez hjá Atletico er hann skaut rétt framhjá markinu og þá fékk Gary Cahill góðan skalla sem fór af Willian og framhjá.

Undir lok síðari hálfleiks lifnaði aðeins yfir mönnum en þá fékk Arda Turan góðan skalla sem fór framhjá markinu.

Lokatölur 0-0 á Vicente Calderon en síðari leikurinn verður leikinn á Stamford Bridge eftir viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner