Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 22. apríl 2014 19:37
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Ég finn til með Moyes
José Mourinho
José Mourinho
Mynd: Getty Images
José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, finnur til með kollega sínum David Moyes, sem var rekinn frá Manchester United í dag.

Mourinho ræddi við ITV fyrir leik Chelsea gegn Atletico Madrid á Vicente Calderon í kvöld en hann hefur sjálfur verið orðaður við starfið hjá United.

Moyes var látinn taka poka sinn í morgun hjá United eftir slakt tímabil en liðið situr í sjöunda sæti deildarinnar og gæti liðið þá misst af Evrópusæti.

,,Ég vil ekki tjá mig um þetta en augljóslega þá finn ég til með honum. Ég finn til með honum eins og ég finn til með öllum knattspyrnustjórum sem missa vinnuna sína," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner