Petr Cech, markvörður Chelsea á Englandi, þurfti að fara meiddur af velli eftir sautján mínútur gegn Atletico Madrid í fyrri leik þessara liða í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Cech meiddist eftir hornspyrnu Atletico en í fyrstu virtist hann meiðast á hné en síðar kom í ljós meiðsli á brjóstkassanum.
Mark Schwarzer kom inná í hans stað en óvíst er hve lengi Cech verður frá.
Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan.
Athugasemdir