Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. apríl 2014 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Þrír leikmenn í banni fyrir síðari leikinn á Stamford Bridge
Lampard verður ekki með í næstu viku
Lampard verður ekki með í næstu viku
Mynd: Getty Images
Þrír leikmenn verða fjarri góðu gamni í seinni undanúrslitaleik Meistaradeildar Evrópu er Chelsea og Atletico Madrid mætast á Stamford Bridge.

Frank Lampard og John Obi Mikel fengu báðir að líta gula spjaldið gegn Atletico Madrid í kvöld í markalausu jafntefli á Vicente Calderon en þeir verða því ekki með í síðari leiknum á Stamford Bridge.

Þá fékk spænski miðjumaðurinn Gabi að líta gula spjaldið í liði Atletico en hann er afar mikilvægur hluti af sterku liði Atletico.

Það er því ljóst að bæði lið verða eitthvað breytt á Stamford Bridge en það mun vonandi ekki vanta fjörið eins og í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner