Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. apríl 2017 17:24
Magnús Már Einarsson
Æfingaleikur: Jafnt hjá Breiðabliki og ÍA - Fram vann
ÞÞÞ skoraði fyrir ÍA í dag.
ÞÞÞ skoraði fyrir ÍA í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik og ÍA gerðu 2-2 jafntefli í æfingaleik á grasinu í Fagralundi í dag.

Skagamenn komust 2-0 yfir snemma leiks en Martin Lund Pedersen jafnaði með tveimur mörkum fyrir Blika.

ÍA mætir FH í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudaginn eftir viku á meðan Blikar mæta KA degi síðar.

Í gær spiluðu Blikar annan leik en þar spiluðu leikmenn sem voru ekki í byrjunarliðinu í dag. Blikar mættu Fram þar en þeir bláklæddu höfðu betur 2-0 í Egilshöllinni.

Breiðablik 2 - 2 ÍA
0-1 Þórður Þorsteinn Þórðarson
0-2 Tryggvi Hrafn Haraldsson
1-2 Martin Lund Pedersen (Víti)
2-2 Martin Lund Pedersen (Víti)

Fram 2 - 0 Breiðablik
1-0 Helgi Guðjónsson
2-0 Dino Garvic

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner