Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. apríl 2017 08:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birkir Heimisson með mark og stoðsendingu
Birkir í leik með Þór í fyrra.
Birkir í leik með Þór í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Unglingalandsliðsmaðurinn Birkir Heimisson spilaði með U-17 ára liði Herenveen sem vann Twente í gær.

Leikurinn fór 3-1 fyrir Herenveen, en Birkir skoraði fyrsta markið og lagði upp annað markið fyrir Herenveen í leiknum.

Liðið er komið í annað sætið í U-17 ára deildinni í Hollandi og Birkir hefur spilað alla leikina fra upphafi til enda.

Hann hefur skorað 12 mörk á tímabilinu og er með flestar stoðsendingar í liði sínu.

Birkir leikur sem miðjumaður og er þetta er því frábær árangur hjá þessum efnilega leikmanni.
Athugasemdir
banner