Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 22. apríl 2017 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Koeman: Margir neikvæðir hlutir
Koeman skildi ekkert í frammistöðu sinna manna.
Koeman skildi ekkert í frammistöðu sinna manna.
Mynd: Getty Images
„Þetta var langt frá okkar besta, frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu," sagði Ronald Koeman, stjóri Everton, eftir markalaust jafntefli gegn West Ham á útivelli í dag.

Koeman var mjög ósáttur með frammistöðu sinna manna og talaði hreint út við blaðamenn eftir leikinn.

„Það vantaði alla áræðni. Þetta var slök frammistaða og það var margt neikvætt," sagði Koeman.

„Eitt jákvætt var það að við héldum hreinu. Við viljum spila eins vel og við getum og þetta var langt frá því."

Everton er þessa stundina með 58 stig, en liðið hefur leikið fleiri leikin en liðin í kringum sig. Koeman vill sigra.

„Núna þurfum við að vinna leiki til að eiga möguleika á sjötta eða fimmta sætinu," sagði Koeman.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner