Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. apríl 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Matic: Ekki besta mark sem ég hef skorað
Matic smellir honum.
Matic smellir honum.
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic skoraði stórkostlegt mark í 4-2 sigri Chelsea á Tottenham í undanúrslitum enska bikarsins í dag.

Matic skoraði með þrumuskoti fyrir utan vítateig en boltinn fór í slána og inn

„Ég er ánægður með markið. Þetta var frábært mark en þetta var ekki besta mark sem ég hef skorað," sagði Matic eftir leik.

Ég skoraði erfiðara mark í grannaslag hjá Benfica og Porto. Þetta er líklega næst besta mark mitt á ferlinum."

„Ég er mjög ánægður með að liðið fái að spila úrslitaleik. Þetta var erfitt gegn mjög góðu liði. Ég vil hrósa Spurs fyrir að gefast aldrei upp."
Athugasemdir
banner
banner