Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 22. apríl 2017 10:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Merson brotnaði niður í beinni sjónvarpsútsendingu
Paul Merson.
Paul Merson.
Mynd: Getty Images
Fótboltasérfræðingurinn Paul Merson brotnaði niður í beinni sjónvarpsútsendingu í gær þegar hann talaði um vin sinn og fyrrum liðsfélaga, Ugo Ehiogu, sem hafði látist um morguninn.

Ehiogu var aðeins 44 ára gamall, en hann hneig niðu á æfingasvæði Tottenham á fimmtudag. Ehiogu var unglingaþjálfari hjá Spurs.

Hann lést í gærmorgun og margir hafa minnst hans á samfélagsmiðlum, þar á meðal margir leikmenn Tottenham.

Merson ræddi um Ehiogu á Sky Sports og talaði þar m.a. um það þegar þeir voru liðsfélagar. Þeir voru saman hjá Aston Villa frá 1998 til 2000 og spiluðu í bikarúrslitum.

„Ég er í sárum. Hann var algjör toppnáungi, þetta er ótrúlegt. Hann var fjall af manni," sagði Merson leiður.

„Billy Joel syngur lagið 'Only The Good Die Young' og það er hann. Hann var frábær leikmaður og góður vinur."


Athugasemdir
banner
banner