Albert Guðmundsson var enn og aftur á skotskónum þegar varalið PSV í Hollandi gerði jafntefli í gærkvöldi.
Liðið mætti MVV í hollensku B-deildinni í gær og Albert var að venju í byrjunarliðinu. Hann spilaði allan leikinn.
Liðið mætti MVV í hollensku B-deildinni í gær og Albert var að venju í byrjunarliðinu. Hann spilaði allan leikinn.
Staðan var 2-1 fyrir MVV þegar lítið var eftir, en þá ákvað þessi efnilegi íslenski leikmaður að grípa til sinna ráð.
Hann skoraði laglegt jöfnunarmark á 87. mínútu og bjargaði stigi fyrir varalið PSV sem er í toppbaráttu.
Albert hefur verið að spila frábærlega, en þetta mark var hans 11. í síðustu 11 leikjum liðsins.
Hér að neðan má sjá markið.
⚽️ Dit was de 2-2 van Jong PSV gisteravond. Het was alweer de 15e treffer van het seizoen voor @snjallbert! pic.twitter.com/0hYUiIOZfD
— PSV (@PSV) April 22, 2017
Athugasemdir