Adam Johnson, sem er fyrrum leikmaður Sunderland, Manchester City og fleiri liða, var tekinn upp á myndband þar sem hann lét ógeðsleg ummæli falla. Johnson situr þessa stundinda í fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára gamalli stúlku.
Þessi fyrrum enski landsliðsmaður var tekinn upp í fangelsinu þar sem hann talaði um kynferðisbrot sitt.
Þessi fyrrum enski landsliðsmaður var tekinn upp í fangelsinu þar sem hann talaði um kynferðisbrot sitt.
Í myndbandinu er Johnson spurður: „Það er ekki eins og þú hafir nauðgað henni að þannig?"
Hann svarar hlæjandi: „Nei, en fyrir sex ár hefði ég samt viljað gera það," en hann var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir brot sitt.
Í myndbandinu heyrist hann líka segja að hann hafi fengið eins langan dóm og hann fékk þar sem hann var frægur.
Johnson var rekinn frá Sunderland eftir að hann viðurkenndi í réttarhöldum að hafa kysst stúlku undir lögaldri.
Stúlkan var aðeins 15 ára gömul, en hún mætti reglulega á leiki hjá Sunderland og var mikill aðdáandi Johnson. Hann var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að kyssa stelpuna og snerta hana kynferðislega.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
Athugasemdir