Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, segir að hefnd sé ekki efst í huga fyrir einvígið sem er framundan gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Atletico hefur tvisvar tapað fyrir nágrönnum sínum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, en það var einmitt raunin í fyrra.
Atletico hefur tvisvar tapað fyrir nágrönnum sínum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar, en það var einmitt raunin í fyrra.
Liðin drógust saman fyrir undanúrslitin í þetta skiptið, en Simeone segir að eina markmiðið sé að komast í úrslitin.
„Markmiðið er að komast í úrslitin, og til þess, þá þarftu að sigra andstæðinginn," sagði Simeone við blaðamenn í gær.
„Það skiptir engu hvaða liði við mætum, það er alltaf sama markmið og sama ástæða til að vinna."
Athugasemdir