Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. apríl 2017 16:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svíþjóð: Árni Vilhjálms spilaði hálfleik í sigri á AIK
Árni var í byrjunarliði Jönköpings Södra.
Árni var í byrjunarliði Jönköpings Södra.
Mynd: Jönköpings
Jönköpings Södra 2 - 1 AIK
0-1 Johan Blomberg ('1 )
1-1 Stefan Karlsson ('5 )
2-1 Jesper Svensson ('68 )

Það var einn leikur í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Árni Vilhálmsson og félagar hans í Jönköpings Södra unnu öflugan sigur á AIK.

Árni byrjaði leikinn hjá Jönköpings Södra, en leikurinn byrjaði ekki vel fyrir hans menn sem lentu undir eftir eina mínútu.

Þeir náðu að svara því með marki á fimmtu mínútu. Staðan í hálfleik var 1-1, en Árni var tekinn af velli í hálfleiknum.

Hans menn náðu að landa sigrinum án hans, en sigurmarkið skoraði Jesper Svensson á 68. mínútu, lokatölur 2-1.

Jönköpings Södra er í öðru sæti deildarinnar með sjö stig, en AIK er um miðja deild með fjögur.
Haukur Heiðar Hauksson spilaði ekki með AIK í leiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner